Laugavalladalur
Laugavalladalur er gróskumikill gróðurvinur skammt vestan Jökulsá á Dal, um 20 km norðan Kárahnjúka.
Þar má finna náttúrulega heita laug þar sem tilvalið er að baða sig. Rétt hjá fellur heitur lækur fram af kletti í litlum fossi og myndar náttúrulega „sturtu“ þar sem hægt er að skola af sér í volgu vatninu.
Gestir eru hvattir til að fara varlega og prófa hitastig vatnsins áður en farið er í laugina, þar sem vatnið getur ofhitnað á úrkomulitlum tímum.