Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Austurland er þekkt fyrir fjölbreyttar matarhefðir þar sem staðbundin hráefni eru í hávegum höfð og þar er úrval veitingastaða og kaffihúsa. Ferðalangar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Veitingahús
Austurland er þekkt fyrir frábærar matarhefðir þar sem staðbundin hráefni eru í hávegum höfð. Hreindýr, lamb og ferskur fiskur með lífrænu grænmeti, villtum sveppum og berjum, auk mjólkurafurða í hæsta gæðaflokki. Á Austurlandi er úrval veitingastaða sem bjóða fjölbreytta og spennandi rétti úr staðbundnum hráefnum. Lítið er um formlega skemmtilstaði á Austurlandi en þess má geta að barstemming myndast á mörgum veitingahúsum þegar líða tekur á kvöld.
Beint frá býli
Staðbundin hráefni og fjölbreyttar matarhefðir eru í hávegum höfð á Austurlandi. Síðustu ár hefur sala á vörum beint frá býli aukist jafnt og þétt, auk þess sem fleiri veitingastaðir og kaffihús bjóða upp á rétti úr matvöru beint frá býli.
Kaffihús
Á ferð um Austurland er notalegt að tilla sér inn á eitthvert þeirra kaffihúsa sem finna má í fjórðungnum. Á flestum kaffihúsunum er boðið upp á heimabakað bakkelsi og sum bjóða upp á veitingar og vörur úr staðbundnum hráefnum.
Barir og skemmtistaðir
Allt frá notalegum hverfiskrám til líflegra skemmtistaða, á Austurlandi eru fjölbreyttir staðir þar sem hægt er að fá sér drykk, hitta heimafólk og njóta stemningarinnar. Hvort sem þú ert að leita að rólegu kvöldi, lifandi tónlist eða góðu kvöldi með vinum, þá er nóg um að velja.