Tjaldsvæðið er í skógarreit við Bleiksána, rétt við innkeyrsluna í bæinn. Þar eru sturtur, snyrting, rafmagn og leiksvæði fyrir börnin. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er í anddyri Sundlaugar Eskifjaðar og er hún opin allt árið.
Eftirfarandi þjónusta er í boði á tjaldsvæðinu:
Salerni, kalt og heitt vatn, ruslagámar, rafmagn, sturta, sundlaug (200 m), heitir pottar (200 m), upplýsingamiðstöð (200 m), bekkir og borð, veitingahús (100 m), kaffihús (100 m), dagvöruverslun (1 km), bensínstöð (500 m), fjallasýn, gönguleiðir, leikvöllur, íþróttavöllur (100 m), veiði, golf (1,5 km), bátaleiga (2 km), heilsugæsla (800 m).