Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

LISTAHÁTÍÐ

LungA

List, sköpun og tjáning

Listahátið ungs fólks á Austurlandi, eða LungA eins og hátíðin er kölluð í daglegu tali, var fyrst haldin árið 2000. Um er að ræða alþjóðlega listahátíð þar sem sköpun, listum og menningu er fagnað með námskeiðum, fyrirlestrum og öðrum viðburðum, og lýkur með uppskeruhelgi (sýningum og tónleikum).

Hátíðin er frábær blanda af listum, sköpun, tjáningu og stórbrotinni náttúru. Hún hefur getið sér gott orðspor, bæði á Ísland og út fyrir landsteinana fyrir frábært andrúmsloft, námskeið af miklum gæðum og með mikilli virkni þátttakenda. Enn fremur færir hátíðin gleði, sjálfsþekkingu, elskendur, nýja vini og góðar minningar fyrir þá sem sækja hátíðina heim.

LungA „fjölskyldan“ samanstendur nú bæði af árlegri listahátíð og skóla. Dagsdaglega er þetta tvennt rekið sitt í hvoru lagi, en heitið, gildin og hugmyndafræðin eru af sama meiði.

Upplýsingar