Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Menningarstofa Fjarðabyggðar

- Söfn og setur

 Menningarstofa Fjarðabyggðar starfar í Fjarðabyggð og undir henni Tónlistarmiðstöð Austurlands en hún er miðstöð tónlistar á Austurlandi og er leiðandi í fræðslu og framþróun listgreinarinnar í landshlutanum.  

Menningarstofa Fjarðabyggðar var sett á laggirnar árið 2017 og hlutverk hennar er að styðja við og efla menningarstarf í Fjarðabyggð á breiðum grundvelli. Öflugt og fjölbreytt menningarlíf er grundvallarþáttur í að gera
Fjarðabyggð að góðum stað til að búa á, og þar leikur Menningarstofa lykilhlutverk.
 

Menningarstofa er vöktunaraðili menningarumhverfis í Fjarðabyggð sem felst í að greina þarfir ólíkra hópa samfélagsins og koma til móts við þarfir og langanir sem flestra. Menningarstofa starfar með fjölbreyttum aðilum í
menningar- og listalífinu og styður þá og eflir til góðra verka.
Menningarstofa leggur áherslu á að tryggja aðgengi allra íbúa svæðisins að menningu og listum, óháð búsetu, uppruna og þjóðfélagsstöðu. Menningarstofa Fjarðabyggðar er tengiliður við grasrótarsamtök á sviði menningar, svo sem áhugaleikfélög og kóra, og stuðlar að góðu aðgengi til viðburðarhalds í húsnæði á vegum sveitarfélagsins.


Menningarstofa er tengiliður leik-, grunn- og tónlistarskóla, safna og annarra stofnana sveitarfélagsins við fagaðila úr skapandi greinum. Menningarstofa vinnur markvisst að auknu aðgengi að skapandi námi og starfi í samstarfi við fræðslustjóra, íþrótta- og tómstundafulltrúa og Safnastofnun Fjarðabyggðar. Menningarstofa er vakandi fyrir því að draga svið og stofnanir að borðinu, leiða samstarf og leggja til samstarfsverkefni þar sem við á.
 

Tónlistarmiðstöð Austurlands var stofnuð 2001 og starfar samkvæmt samþykkt frá 2018 en í dag fer Menningarstofa Fjarðabyggðar fyrir starfseminni. Tónlistarmiðstöð/Menningarstofa er samstarfsaðili annarra menningarmiðstöðva á Austurlandi varðandi stefnumótun í málefnum tónlistar fyrir landshlutann og samstarfsverkefna á breiðum grunni.  

Hlutverk Tónlistarmiðstöðvar Austurlands er að: a) Standa vörð um tónlistarstarf, tónlistarfólk og tónlistarskóla. Hlúa að vaxtasprotum á sviði tónlistar, svo sem starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Austurlands. b) Vinna að þróunarstarfi og fræðslu á sviði tónlistar c) Vinna að eflingu samstarfs á sviði tónlistar og halda úti fjölbreyttum samstarfsverkefnum með stofnunum innan Austurlands, sem utan. d) Standa fyrir tónleikahaldi sem eflir menningarlæsi í samfélaginu og eykur þekkingu á fjölbreyttum straumum og stefnum í tónlist.  

Markmiðið með fræðsluverkefnum Tónlistarmiðstöðvar er að stuðla að sjálfstæði og sjálfsöryggi barna til að iðka tónlist í sínu daglega lífi, í leik og starfi. Fræðsluverkefnin eru byggð uppá mismunandi aðferðum til að miðla þessari hugmyndafræði til barna og ungmenna t.d. með fyrirlestrum, vinnustofum og viðburðum á sviði tónlistar. Lagt er upp með að börn tileinki sér aðferðir til tjáningar og miðlunar á hugmyndaheimi sínum en um leið að gefa þeim innsýn í fjölbreytt tækifæri hvað varðar nám og starf til framtíðar.

Fræðsluverkefni Tónlistarmiðstöðvar stuðla að auknu menningarlæsi barna og ungmenna, þá einkum sem snýr að tónlist en það er eitt af markmiðum Sóknaráætlunar Austurlands.  

Menningarstofa Fjarðabyggðar

Menningarstofa Fjarðabyggðar

 Menningarstofa Fjarðabyggðar starfar í Fjarðabyggð og undir henni Tónlistarmiðstöð Austurlands en hún er miðstöð tónlistar á Austurlandi og er leiðan
Tjaldsvæðið Eskifirði

Tjaldsvæðið Eskifirði

Tjaldsvæðið er í skógarreit við Bleiksána, rétt við innkeyrsluna í bæinn. Þar eru sturtur, snyrting, rafmagn og leiksvæði fyrir börnin. Upplýsingamiðs
Sundlaugin Eskifirði

Sundlaugin Eskifirði

Skemmtileg útisundlaug sem er 25 x 12 metrar. Við laugina eru tveir heitir pottar, gufubað, buslulaug og 3 mismunandi rennibrautir. Frábært útsýni er
Tanni ferðaþjónusta ehf.

Tanni ferðaþjónusta ehf.

Tanni Travel er ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreytta afþreyingu á Austurlandi. Við erum fjölskyldufyrirtæki og má rekja sögu fyrirtækisi
Sjóminjasafn Austurlands

Sjóminjasafn Austurlands

Í safninu eru munir sem tilheyra sjósókn og vinnslu sjávarafla. Einnig eru þar verslunarminjar og hlutir sem tilheyra ýmsum greinum iðnaðar og lækning
Hótel Eskifjörður

Hótel Eskifjörður

Hótel Eskifjörður er byggt á sterkum grunni sem hýsti áður útibú Landsbanka Íslands. Saga sem nær aftur til 1918 en byggingin er frá árinu 1968. Hótel
Eskifjörður

Eskifjörður

Eskifjörður er eins og sýnishorn af Austurlandi, en það má segja að í firðinum sé allt dregið saman sem er heillandi við landshlutann í heild. Samspil
Golfvöllurinn Eskifirði

Golfvöllurinn Eskifirði

Golfvöllur hefur verið á Eskifirði síðan árið 1979 og ber hann heitið Byggðarholtsvöllur. Hann er níu hola og staðsettur sunnan Eskifjarðarár, innan b
Randulffs-sjóhús

Randulffs-sjóhús

Randulffssjóhús á Eskifirði er starfrækt í samvinnu við Ferðaþjónustuna Mjóeyri og er þar rekið veitingahús yfir sumartímann þar sem boðið er upp á ma
Mjóeyri

Mjóeyri

Mjóeyri er einstaklega fallegur staður utan við þorpið í Eskifirði. Þar eru viti og fjara þar sem skemmtilegt er að leika sér. Mjóeyri var síðasti aft
Ferðaþjónustan Mjóeyri

Ferðaþjónustan Mjóeyri

Gistiheimilið er staðsett í fögru og friðsælu umhverfi á Mjóeyri, rétt utan við þéttbýlið við Eskifjörð. Húsið er nýlega innréttað, var byggt árið 189
Hólmatindur gönguleið

Hólmatindur gönguleið

Hólmatindur, 985 metra hár, er stolt Eskfirðinga en glæsilegur tindurinn stendur austan megin í firðinum, gengt þorpinu. Krefjandi gönguleið liggur á
Völvuleiði

Völvuleiði

Efst í Hólmahálsinum, nokkru ofan við veginn er leiði völvunnar sem hefur verndað Reyðarfjörð og Eskifjörð frá utanaðkomandi árásum um aldir.  Sagnir

Aðrir (2)

Golfklúbbur Byggðarholts / GBE Bogahlið 2 735 Eskifjörður 892-4622
Steinasafn Sörens og Sigurborgar Lambeyrarbraut 5 735 Eskifjörður 476-1177