Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Afrakstur ævinnnar- kennari- fumkvöðull- listakona

12. september kl. 14:00-17:00

Opnuð verður sýning um ævistarf Guðrúnar Sigurðardóttur frá Húsey laugardaginn 12. september kl: 14:00. Þar verða brot af verkum Guðrúnar sýnd, allt frá barnæsku fram á þennan dag.

Þráin til að skapa og varðveita handverk sem og að kenna öðrum er Guðrúnu í blóð borin og varð það hennar ævistarf. Hún starfaði sem handmenntakennari í Egilsstaðaskóla um þrjátíu ára skeið. Samhliða hélt hún námskeið um allt land í fjölbreyttu handverki og rak um árabil Tómstundaiðjuna á Egilsstöðum. Þekktust var hún fyrir náttúruskreytingarnar sínar og sérstaklega blómakörfurnar sem prýtt hafa Egilsstaði um árabil.

Sýningunni er ætlað að vekja okkur til umhugsunar um hvers virði ævistarf fólks er sem á skapandi hátt brennur fyrir því að gera samfélagið sitt betra og áhugaverðara.

Sýningin er styrkt af Uppbyggingarsjóð Austurlands og Menningarsjóði Múlaþings og stendur til 9.október.

GPS punktar

N65° 15' 33.154" W14° 24' 22.573"