Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Leirnámskeið í Sköpunarmiðstöðinni með Rósu Valtingojer

11.-29. apríl

Upplýsingar um verð

5000

Grunnámskeið í leirmótun þar sem þátttakendur fá að kynnast leirnum, eiginleikum hans og möguleikum.
Kenndar verða helstu aðferðir í handmótun og skreytingu leirmuna. Þátttakendur hanna sína eigin leirmuni og móta þá með þeim aðferðum sem þeir tengja best við og mála með leirlitum ef við á.
Á síðari hluta námskeiðsins verða hlutirnir málaðir með glerungi. Tveim dögum síðar verður svo hægt að koma og sjá lokaútkomuna og fara með hlutina sína heim.

Verð: 5.000 kr. fyrir allt námskeiðið
Fjöldi sæta: 6

Til að skrá sig og ganga frá greiðslu skal hafa samband við contact@fishfactory.is

Námskeiðið er styrkt af Sterkum Stöðvarfirði.

GPS punktar

N64° 49' 56.428" W13° 52' 28.346"

Sími