Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Eyrnakonfekt í Tónlistarmiðstöð Austurlands

17. febrúar kl. 20:00-21:00

Upplýsingar um verð

Almennt verð: 2.500 kr, en 2.000 fyrir nema og ellilífeyrisþega
Hér er um að ræða hressandi tónleika með nýjum íslenskum samsöngslögum, dúettum, tríóum og kvartettum. Lögin eru fyrir söngvara og píanó og skiptast í þrjá flokka eftir efni: Sumarlög, Matarlög og Lög um ástina. Þórunn Guðmundsdóttir semur bæði texta og tónlist, en hún hefur getið sér gott orð fyrir bæði tónverk og sviðsverk (leikrit og óperur).
Flestir textarnir eru bráðfyndnir, orðaleikir og glettni eru í fyrirrúmi auk þess sem tónlistin er á léttum nótum en heillandi og falleg. Lögin eru auk þess ljóðræn og yndisleg áheyrnar.
 
Flytjendur:
Björk Níelsdóttir, sópran
Erla Dóra Vogler, mezzó-sópran
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Hafsteinn Þórólfsson, baritónn
Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanóleikari
 
Tónleikarnir eru styrktir af Fjarðabyggð, Síldarvinnslunni í Neskaupstað, Hótel Héraði, Vök og Menningarsjóði FÍH.
 
Athugið að samkomureglur munu líklega hafa einhver áhrif á fjölda tónleikagesta, grímuskyldu eða framvísun staðfestingar á neikvæðu hraðprófi. Upplýsingar verða uppfærðar á viðburðasíðu tónleikanna þegar nær dregur - fylgist með!

Staðsetning

Tónlistarmiðstöð Austurlands

Sími

Fleiri viðburðir