Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fjallahjólaferð frá Öxi niður í Fossárdal

19. ágúst kl. 10:00

Upplýsingar um verð

4500 kr.
Fjallahjólaferð frá Öxi niður í Fossárdal
19. ágúst, laugardagur
Fararstjórn: nánar auglýst síðar.
 
Mæting kl 10 á malarplani ca. 500 m norðan við veðurathugunarstöðina á Öxi (Egilsstaðamegin). Hjólað eftir slóða/jeppavegi yfir í Fossárdal, ca. 35-40 km. Ath að fjallahjólin þurfa að vera á breiðum dekkjum. Hjólað verður eftir jeppavegi yfir í Fossárdal, ca. 35-40 km.
Leiðin liggur upp Merkjahrygg um Leirdal og Lönguhlíð yfir á brúnir Hamarsdals og þaðan niður í Fossárdal.
Þvera þarf Fossá á tveimur stöðum og er hún sennilega um 20 cm djúp á þeim stöðum og botninn malarbotn.
 
Innifalið: leiðsögn, grillveisla í Fossárdal og skutl að sækja bíla að hjólaferð lokinni. Skráning skal fara fram fyrir kl. 12 þann 17. ágúst hjá thorgm@simnet.is eða í síma: 895-1743.
Verð 4.500 kr.

GPS punktar

N64° 49' 49.134" W14° 39' 35.666"

Staðsetning

Öxi, Múlaþing, Eastern Region, Iceland

Fleiri viðburðir