Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Frá hljóði á vínyl

13. september kl. 13:00-16:00
Dreymir þig um þína eigin vínylplötu?
Þann 13. september setja gestalistamennirnir Katie Haegele og Joe Carlough úr Consonant Collective upp heimasmíðaða plötuskurðarvél sína á Skriðuklaustri og skera 7 tommu vínylplötur á staðnum.
Komdu og fylgstu með þessu skemmtilega ferli — og taktu með þér plötu heim! Á plötunum má meðal annars heyra upptökur úr náttúrunni og ljóð sem Katie og Joe unnu í Hallormsstaðaskógi, auk hljóðrita frá réttum. Þú getur líka komið með þína eigin tónlist og látið skera hana á vínyl.
Ef þú vilt fá þína eigin tónlist skorna á vínyl skaltu koma með MP3- eða WAV-skrá, að hámarki 5 mínútur að lengd. Hægt verður að senda skrána með AirDrop eða tölvupósti á joe@consonantcollective.com.
Katie og Joe munu jafnframt segja frá því hvernig plötuskurðurinn fer fram og gefa gestum innsýn í sögu hljómplatna og vélanna sem notaðar hafa verið við gerð þeirra.
Plötuskurðarvélin verður í gangi frá kl. 13:00 til 16:00. Tilvalið er að fá sér hádegisverð á Klausturkaffi áður en viðburðurinn hefst eða njóta kaffis og köku að honum loknum.
Nánari upplýsingar um Consonant Collective og plötugerð þeirra má finna á consonantcollective.com og á Instagram: @consonantcollective.

GPS punktar

N65° 2' 33.901" W14° 57' 3.957"

Sími