Listafólk Stólpa og Sláturhúsið bjóða ykkur velkomin á sýninguna Ísland með mínum augum.
Sýningin er hluti af listahátíðinni List án landamæra. List án landamæra er listahátíð sem leggur áherslu á list fatlaðs fólks. Hátíðin var fyrst haldin árið 2003 á Evrópuári fatlaðra og hefur verið haldin árlega síðan. Hátíðin sýnir öll listform og stendur fyrir samstarfi á milli listamanna. Hátíðin er eini vettvangurinn á Íslandi sem leggur alfarið áherslu á listsköpun fatlaðs listafólks og hefur skapað sér sérstöðu innan menningarlífsins á Íslandi.
Sýningin stendur til 16. maí