Upplýsingar um verð
31900
Leik og Sprell verður á Eskifirði í sumar!
Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.
5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Almar Blær Sigurjónsson og Bjartey Elín Hauksdóttir.
Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar