Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Rithöfundalest(ur) 2026

26.-29. nóvember

Upplýsingar um verð

frítt

Rithöfundalestin 2026 – á ferð um Austurland 26.–29. nóvember

Árleg ferð Rithöfundalestarinnar um Austurland verður farin dagana 26.–29. nóvember. Í ár verða eftirtaldir höfundar með í för: Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson, Bergrún Íris Sævarsdóttir. 

Karólína Rós Ólafsdóttir,Leifur Helgi Konráðsson, Sveinn Snorri Sveinsson, Tinna Guðmundsdóttir, Ína Dagbjört Gísladóttir f.h. Stefaníu Guðbjargar Gísladóttir, Adda Sigurjóns og Særún Hlín Laufeyjardóttir bætast í hópinn á ákveðnum stoppum.

Lesendum á Austurlandi gefst hér einstakt tækifæri til að kynnast áhugaverðum jólabókum frá fyrstu hendi höfundanna sjálfra og taka þátt í jólabóka-samræðunni á Bókahátíðum um allt Austurland. Á hverjum viðkomustað verða kynntar bækur höfunda sem koma fljúgandi og hinna sem eru á staðnum, bækur sem tengjast Austurlandi á einn eða annan hátt. Hægt verður að kaupa bækur á staðnum og jafnvel fá áritun. Höfundar heimsækja einnig skóla og dvalarheimili aldraðra á yfirferð sinni og boðið upp á ritsmiðjur fyrir börn og fullorðna.

Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og Menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps. Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, Brims, Nestaks, Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, Bílaleigu Akureyrar, Gistihússins á Egilsstöðum og bókaforlaganna Benedikts, Forlagsins, Bókabeitunnar og Orðs og lystar.

Verið öll velkomin! Ókeypis er inn á alla viðburði.

Nánari upplýsingar um viðburðina má finna á Facebook-síðum samstarfsaðilanna, á East.is og Skriduklaustur.is

Dagskrá Rithöfundalestarinnar 2026

Miðvikudagur 25. nóvember

  • Kl. 15:00 Reyðarfjörður: Ritsmiðja barna, Bókasafni Reyðarfjarðar
  • Kl. 17:00 Fáskrúðsfjörður: Ritsmiðja barna, Bókasafni Fáskrúðsfjarðar

Fimmtudagur 26. nóvember

  •  Kl: 16:00 Vopnafjörður: Barna- og ungmennaupplestur Bókasafni Vopnafjarðar
  • Kl. 20:00 – Vopnafjörður:

Föstudagur 27. nóvember

  • Kl. 16:30 – Djúpivogur:
  • Kl. 20:00 – Fáskrúðsfjörður: Bókahátíð, Franska safninu

Laugardagur 28. nóvember

  •  Kl. 13:00 – Neskaupstaður: Barna- og ungmennaupplestur, Tónspili.
  • Kl. 14:00 – Neskaupstaður: Bókahátíð, Tónspili
  • Kl. 17:00 – Reyðarfjörður: Hernámsæskan – bókarkynning, Stríðsárasafninu
  • Kl. 20:00 – Seyðisfjörður: Bókahátíð, Skaftfelli

Sunnudagur 29. nóvember

  • Kl. 11:00 -Egilsstaðir: Barna- og ungmennaupplestut, Bókasafni Múlaþings Egilsstöðum
  • Kl. 13:00 -Fljótsdalur: Grýlugleði og jólakatta-ritsmiðja
  • Kl. 15:00 -Fljótsdalur: Bókahátíð í beinu streymi, Skriðuklaustri