Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Tónleikaröð Bláu Kirkjunnar- Tríó Öræfi og Arnaldur Arnarsson

22. júlí kl. 20:00-22:30

Tónleikaröð Bláu kirkjunnar

Sumartónleikaröðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af helstu menningarviðburðum í tónlistarlífi Austfirðinga.

Húsið opnar kl. 20:00.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.

 

About the Series

The series has become one of the major cultural events in the East of Iceland.

The house opens at 20:00.
The concert starts at 20:30.

 

Dagskrá tónleikaraðarinnar sumarið 2026

Sumarkvartettinn – 8. júlí

“Sumar kvartettinn” er samstarf einvala tónlistarfólks úr íslensku tónlistarlífi, sem leiðir saman krafta sína, þvert yfir landið, í lítilli röð tónleika sumarið 2026. Kvartettinn skipa söngkonan Björt Sigfinnsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Sigmar Þór Matthíason á kontrabassa og trommuleikarinn Birgir Baldursson.
Á tónleikunum verða spilaðar eigin útsetningar af uppáhalds jazz og blús lögum bandsins í bland við frumsamið efni, íslenska sálma/þjóðlög og einstaka “off genre” perlur úr ýmsum áttum.

 

“Sumarkvartettinn” (en: The Summer Quartett) is a collaboration of acclaimed musicians from the Icelandic music scene, joining forces from across the country for a short concert series in the summer of 2026. The quartet features singer Björt Sigfinnsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson on guitar, Sigmar Þór Matthíason on double bass, and drummer Birgir Baldursson.

The concerts will feature the band’s own arrangements of their favorite jazz and blues songs, mixed with original material, Icelandic hymns and folk songs, as well as occasional “off-genre” gems from various musical directions.

 

 

MAAR – 15. júlí

MAAR er samvinnuverkefni Aspar Eldjárn, Helgu Ragnarsdóttir og Valeriu Pozzo, þriggja vinkvenna sem allar starfa í tónlist en eru nú í fyrsta skipti að semja saman. Vinkonurnar kynntust fyrir rúmum áratug í London þar sem þær bjuggu, og hafa allar starfað við tónlist og aðra listsköpun síðan þá. Þær hafa unnið saman um langt skeið, þar sem þær hafa stutt við og leikið tónlist hver annarar en leiða nú í fyrsta sinn hesta sína saman í sameiginlegri tónsköpun.

Kveikjan að þessu samstarfsverkefni varð til í samtali þeirra á milli þar sem þær ræddu mikilvægi þess að búa til umhverfi sem hlúir að, styður við og hvetur til sköpunar og vildu þær búa til slíkan griðarstað í hver annarri. Þær héldu því í sumarbústað á suðurlandi sumarið 2024, þar sem á einni viku urðu til fjögur lög og textar sem munu prýða fyrstu stuttskífu sveitarinnar. Er stuttskífan einungis upphafið af tónsköpuninni, en hugsunin er að fylgja henni eftir með áframhaldandi tónsmíðum, breiðskífu og tónleikahaldi um ókomin ár.

Tónlistin sjálf einkennist af röddunum, djúpstæðum en óræðum textum og órafmögnuðum hljóðfærum.

MAAR is a collaborative project by Ösp Eldjárn, Helga Ragnarsdóttir, and Valeria Pozzo—three friends who all work in music but are now composing together for the very first time. The friends met over a decade ago while living in London and have all been working in music and other creative arts since then. They have worked together for a long time, supporting and playing each other’s music, but are now joining forces for the first time in a joint musical creation.

The spark for this collaborative project came from a conversation between them about the importance of creating an environment that nurtures, supports, and encourages creativity, and they wanted to build such a sanctuary in one another. Consequently, they headed to a summer cottage in South Iceland in the summer of 2024, where, in just one week, they created four songs and lyrics that will grace the band’s debut EP. This EP is only the beginning of their musical journey; the plan is to follow it up with continued songwriting, a full-length album, and concerts for years to come.

The music itself is characterized by their vocals, deep yet enigmatic lyrics, and acoustic instruments.

Tríó Öræfi býður upp á létta, áheyrilega og sumarlega dagskrá þar sem sígild tónlist fær að njóta sín í óhefðbundinni og heillandi hljóðfæraskipan. Yfirskrift tónleikanna er Zingara, eftir samnefndum kafla í kvintett Matiegka og Schuberts sem fluttur verður á tónleikunum, en orðið merkir sígaunastúlka.

Tríó Öræfi skipa þær Sóley Þrastardóttir þverflautuleikari, Þórunn Harðardóttir á víólu og Ásdís Arnardóttir sellóleikari. Að þessu sinni fær Öræfi til liðs við sig gítarleikarann Arnald Arnarson, sem hefur verið búsettur í Barcelona um árabil.

Hryggjarstykki dagskrárinnar er kvartett í fimm köflum eftir Franz Schubert fyrir gítar, flautu, víólu og selló. Verkið byggir á tríói eftir Wentzel Matiegka, en í útsetningu Schuberts bætist sellórödd við og færir tónmálinu aukna dýpt og ríkari litbrigði.

Á tónleikunum verður einnig flutt nýtt verk eftir Oliver Kentish fyrir þessa hljóðfærasamsetningu, sem er samið sérstaklega fyrir hópinn. Auk þess verða fluttir kaflar úr tveimur tríóverkum frá rómantíska tímabilinu: Grand Trio op. 16 eftir Josef Kreuzer og Terzetto Concertante eftir Niccolò Paganini. Þótt verkin hafi bæði yfir sér rómantískan blæ eru þau ólík að karakter og áferð, og hin óvenjulega hljóðfæraskipan gæðir hverju þeirra lífi.

Húsið opnar kl. 20:00.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.

 

 

 

 

 

GPS punktar

N65° 15' 35.451" W14° 0' 17.643"

Fleiri viðburðir