Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Veðurfar

Hiti 8°C / 46.4F

Meðaltal - efri mörk 11°C / 51.8F

Meðaltal - neðri mörk 5°C / 41F

Úrkoma 58mm/dag

Tímar af dagsbirtu 20

Við hverju er að búast?

Yfir háveturinn má búast við öllum veðrum og skjótt skipast veður í lofti. Hlýr og skjólgóður vetrarklæðnaður er nauðsynlegur. Þegar snjóar á fjöllum fikra hreindýr, sem aðeins er að finna á Austurlandi, sig niður á láglendið svo ökumenn þurfa að hafa varann á. Þegar líður á janúarmánuð fer daginn að lengja hægt og rólega. Norðurljós sjást á himni.

Hvað þarf að taka með?

  • Létt lög af fötum (síðermaboli, létta jakka o.þ.h.)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Skordýrafælur/flugnanet
  • Sólavörn
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)
  • Augnhlíf/svefngrímu

Júlí er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði

Viðburðir