Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Aðal málið er pakka nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Veðurfar

Hiti 3°C / 37.4F

Meðaltal - efri mörk 6°C / 42.8F

Meðaltal - neðri mörk -1°C / 30.2F

Úrkoma 47mm/dag

Snjódagar 7

Tímar af dagsbirtu 19

Við hverju er að búast?

Vorið kemur yfirleitt af alvöru í maí en það er ekki hægt útiloka möguleikann á snjókomu þó það bjart næstum allan sólarhringinn. Enn er nauðsynlegt fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum, sérstaklega fjallvegum. Sauðburður stendur yfir í sveitum landsins og hafa ber í huga sauðfé getur verið laust við vegi í námunda við sveitabæi. Maí getur bæði verið vinda- og rigningasamur svo mundu eftir hlífðarfötum.

Hvað þarf að taka með?

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)
  • Augnhlíf/svefngríma
  • Sólarvörn
  • Létt lög af fötum (síðermaboli, létta jakka o.þ.h.)

 

 

Upplifðu aðra mánuði

Viðburðir