Þitt heimili að heiman
Hótel Valaskjálf er staðsett í rólegu og friðsælu umhverfi á Egilsstöðum og býður upp á notalega gistingu í hjarta Austurlands. Staðurinn á sér áratugalanga sögu og hefur í gegnum tíðina skapað sér gott orð fyrir hlýlegt andrúmsloft og góða staðsetningu.
Alls eru 39 herbergi, öll með sér baðherbergi, auk rúmgóðs veitingasalar og fundarsalar. Aðstaðan hentar vel fyrir fjölbreytta viðburði, veislur og mannfagnaði.
Á staðnum er einnig glæsilegur bar þar sem gestir geta notið góðra drykkja og léttra veitinga. Happy hour er alla daga frá kl. 16:00–19:00.