Egilsstaðir:
10:00 Blöðrusala meistaraflokks kvenna í knattspyrnu í Hettunni við Vilhjálmsvöll.
10:30 Fjölskyldustund í Egilsstaðakirkju.
11:00 Skrúðganga frá Egilsstaðakirkju að íþróttahúsi. Lúðrasveit Fljótsdalshéraðs leiðir gönguna ásamt fánaberum. Að göngu lokinni býður fimleikadeild Hattar upp á fimleikasýningu.
11:30–12:30 Móttaka skúlptúra í skúlptúrasamkeppni fyrir börn fædd 2013-2020. Þemað í ár er Lagarfljótsbrúin en 120 ár eru liðin frá því að Lagarfljót var brúað.
11:30–14:15 Skemmtilegt í Tjarnargarðinum: hoppukastalar, andlitsmálun, hestar frá Finnsstöðum, candy floss, popp, pylsur og fleira góðgæti.
13:00 Hátíðardagskrá á sviðinu í Tjarnargarðinum.
- Hátíðarræða
- Tónlistaratriði
- Fjallkona
- Árleg viðurkenning Rótarýklúbbs Héraðsbúa
- Lagarfljótsbrúin
- Verðlaunaafhending í skúlptúrasamkeppni
Þjóðbúningasýning í Minjasafni Austurlands. Opið hús og frítt inn í tilefni dagsins.
Seyðisfjörður
11:00 Blómsveigur lagður á leiði Björns í Firði.
12:30 17. júní hlaup Hugins fyrir 12 ára og yngri. Mæting við Seyðisfjarðarkirkju.
13:00 Opnun á svakalegasta hoppukastala sem Seyðisfjörður hefur séð í garðinum við Seyðisfjarðarkirkju.
15:00 Hátíðardagskrá við Seyðisfjarðarkirkju.
16:00 Sýningin Kjarval á Austurlandi opnuð í Skaftfelli.
Veitingastaðir bæjarins bjóða upp á ýmis tilboð á mat og drykk.
Djúpivogur
13:00–14:00 Gamla kirkjan: andlitsmálun. Veifur og fánar til sölu.
14:15 Skrúðganga.
14:30 Hátíðardagskrá í Blá:
- Skemmtidagskrá fyrir börnin, það verður nóg um að vera!
- Fánahylling, ræðuhöld og söngur
- Kaffi á könnunni
- Grillveisla í boði Neista!
15:30 Vatnsrennibraut í Neistabrekkunni (ef veður leyfir). Mæta með aukaföt og handklæði!
Borgarfjörður
13:00 Skrúðganga frá Heiðinni og upp á íþróttavöll.
Hátíðardagskrá, lifandi tónlist, leikir og sprell á íþróttavellinum.
15:00 Kaffihlaðborð í Fjarðarborg.