Verið velkomin í ritlistarvinnustofu á fyrsta degi vetrar! Í myrkrinu og aðdraganda Allraheilagramessu getur verið spennandi að leyfa huganum að reika frá hversdagsleikanum og röksemdunum og inn á slóðir þess hulda. Í undirmeðvitundinni geymast hugsanir, minningar, draumar og sköpun sem við náum ekki alltaf til. Í gegnum ósjálfráð skrif munum við skoða hvernig er hægt að hlusta eftir og nálgast undirmeðvitundina, og jafnvel nota hana sem efnivið til sköpunar.
Vinnustofan er opin öllum sem eru áhugasöm um að skrifa og vilja prófa nokkrar æfingar til að koma sér af stað eða sækja sér nýjan innblástur, hann getur nefnilega líka búið innra með okkur sjálfum. Áætluð tímalengd vinnustofunnar er um tvær klukkustundir og er hún hugsuð fyrir fólk á öllum aldri, hvort sem það hefur mikla eða litla reynslu af skrifum.
Vinnustofuna leiðir Eyrún Úa, listakona sem hefur undanfarinn mánuð dvalið í listamannasetrinu Þórsmörk. Þar hefur hún haldið áfram rannsóknum sínum á þeim óbilandi sköpunarkrafti sem býr í draumum og hvernig sé hægt að gera honum skil í gegnum ólíka listmiðla. Hún er einnig meðlimur í ritlistarkollektívunni Yrkjur sem hefur verið starfandi frá árinu 2022. Starfsemi Yrkja felur í sér að skapa vettvang þar sem ungskáldum og öðrum grasrótarskáldum gefst tækifæri til að koma fram, skrifa, og heyra nýjar raddir. Kollektívan hefur haldið fjölda vinnustofa, upplestrarkvöld og staðið að útgáfu á prenti.