Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

BRAS: Landnámskona, hannaðu þitt eigið landnámsfólk

13. nóvember kl. 16:00-18:30
Fimmtudaginn 13. nóvember býður Minjasafn Austurlands börnum á aldrinum 7-12 ára upp á skemmtilega smiðju í tengslum við sérsýninguna "Landnámskonan".
Rannveig Þórhallsdóttir, fornleifafræðingur, fræðir börnin um fornleifauppgröftinn sem farið hefur fram í Firði á Seyðisfirði síðustu ár, sem og um Fjallkonuna sem fannst á Vestdalsheiði árið 2004. Eftir fræðsluna fá börnin frjálsar hendur við að hanna sitt eigið landnámsfólk úr allskyns efniviði sem í boði verður. Landnámsfólkið mun svo prýða veggi Safnahússins.
Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í smiðjuna með því að senda tölvupóst á eyrun@minjasafn.is
Viðburðurinn er haldinn í tengslum við BRAS (Menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi).

GPS punktar

N65° 15' 45.434" W14° 23' 47.097"