Upplýsingar um verð
2000
Sóley Þrastardóttir og Héctor Nicolás Gómez bjóða ykkur innilega velkomin á tónleika í Egilsstaðakirkju laugardagskvöldið 9. maí, þar sem flutt verður falleg og fjölbreytt dagskrá með verkum bandarískra tónskálda 20. aldar fyrir flautu og píanó.
Á efnisskránni eru verk eftir Aaron Copland, Samuel Barber, Ernest Bloch og Eldin Burton, sem sameina lagræna fegurð, innlifun og lífsgleði.
Tónleikarnir eru styrktir af Múlaþingi og Egilsstaðakirkju.
Miðaverð kr. 2.000, en ókeypis fyrir 18 ára og yngri.