Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Heilinn og hamingjan

15. október kl. 16:00-18:00
Krabbameinsfélög Austurlands og Austfjarða í samvinnu við Ráðgjöf og þjónustu Krabbameinsfélagsins bjóða upp á námskeiðið Heilinn og hamingjan. Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig áföll og streita geta mótað og haft áhrif á heila og taugakerfi okkar og jafnvel haldið því í viðvarandi streituástandi með tilheyrandi vanlíðan og ýmsum erfiðum einkennum.
Þessi nálgun útskýrir vel áhrifin á líðan okkar en einnig viðbrögð við ýmsum aðstæðum í daglegu lífi.
Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein en markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti aukið frið og vellíðan í daglegu lífi. Kynntar verða ýmsar leiðir og kenndar æfingar til að styrkja taugakerfið, breyta gömlum mynstrum og auka vellíðan.
Leiðbeinandi: Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu.
Námskeiðið eru 2 skipti og er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og verður haldið dagana 15. okt og 11. nóv kl. 16-18 í húsnæði Krabbameinsfélags Austfjarða á Reyðarfirði.
Aðeins 15 pláss í boði og skráning fer fram með því að senda tölvupóst á kraus@simnet.is
Umsagnir um námskeiðið:
„Ætti að vera skyldunámskeið fyrir alla sem greinst hafa með krabbamein - og jafnvel aðra líka. Ótrúlega fræðandi og gefandi."
„Námskeiðið var mjög fræðandi, varpaði ljósi á ýmislegt og jók skilning á bæði líkamlegri og andlegri líðan. Gaf ýmiss verkfæri sem nýtast til framtíðar

GPS punktar

N65° 1' 57.519" W14° 13' 27.507"

Fleiri viðburðir