Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hin Færeyska Guðrið Hansdóttir í Tónspil

26. október kl. 20:00-22:00

Hin ástsæla færeyska tónlistarkona Guðrið Hansdóttir snýr aftur til Íslands í október 2026 með glænýja og ferska tónlist í farteskinu!
Guðrið fagnar útgáfu sjöundu hljóðversplötu sinnar, Sýrublað, með því að leggja í umfangsmikla hringferð um landið þar sem hún mun halda 9 tónleika á tímabilinu 20. til 29. október.
Platan Sýrublað kom út fyrr á árinu við frábærar viðtökur. Um tónlistina segir Guðrið sjálf: „Tónlistin er eins og að bíta í túnútublað (súru) – fersk, stökk, græn og örlítið súr.“ Platan er pródúseruð af Høgni Lisberg og einkennist af grípandi og draumkenndum indí-pop hljómi sem Guðrið er þekkt fyrir. Guðrið hefur verið áberandi í færeysku og norrænu tónlistarlífi allt frá aldamótum, bæði sem sólólistamaður og sem hluti af rafpopp-dúettinum BYRTA.
Fyrri plata hennar, Gult myrkur, var m.a. valin plata ársins á Færeysku tónlistarverðlaununum (FMA). Á þessu ferðalagi um Ísland verður Guðrið ekki ein á ferð, heldur fær hún til liðs við sig tvo magnaða meðspilara. Ekki missa af tækifærinu til að upplifa einn af skærustu tónlistarmönnum Færeyja í lifandi og nánu umhverfi.
Tryggðu þér miða strax!

Húsið opnar 20:00 og tónleikar hefjast kl 20:30
Miðaverð Kr 5.990

Staðsetning

BRJÁN (Tónspil), Neskaupstað