Innsævi fer fram í Fjarðabyggð 1.–20. júní
Menningarstofa Fjarðabyggðar vinnur nú af krafti að undirbúningi listahátíðarinnar Innsævis, sem fram fer dagana 1.–20. júní 2026. Hátíðin verður haldin víðs vegar um Fjarðabyggð, frá Breiðdalsvík til Mjóafjarðar og allt þar á milli, og verður heildardagskrá kynnt í maí.
Áhersla Innsævis verður á að virkja alla bæjarkjarna Fjarðabyggðar með fjölbreyttum viðburðum sem dreifast yfir tímabilið, með mismunandi þunga á ólíkum stöðum og tímum. Menningarstofa leiðir skipulag og undirbúning hátíðarinnar í nánu samstarfi við listamenn, samstarfsaðila og íbúa. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, gegnir hlutverki listræns stjórnanda og heldur utan um heildarsýn hátíðarinnar.
„Innsævi er vettvangur fyrir listir, samveru og skapandi kraft um allt sveitarfélagið. Við viljum byggja hátíðina upp með íbúum, listafólki og samstarfsaðilum og skapa fjölbreytta dagskrá sem endurspeglar mannlíf, menningu og kraftinn sem býr í Fjarðabyggð,“ segir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Fjölbreytt dagskrá í mótun
Þótt dagskráin verði kynnt í heild sinni í maí er nú þegar ljóst að fjölbreyttir og spennandi viðburðir verða á dagskrá. Í vinnslu og staðfestingu eru meðal annars eftirfarandi viðburðir:
- Tónleikar með Stefáni Ragnari í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
- Glott, viðburður fyrir ungt fólk í Egilsbúð
- Næstu tónleikar VÍKURVAKA í Frystihúsinu á Breiðdalsvík
- Kvæðaball í Sköpunarmiðstöðinni
- Tónleikar á Reyðarfirði
Sýningar og listviðburðir
Á dagskrá verða einnig fjölbreyttar sýningar og listviðburðir, þar á meðal:
- Sýning í Gamla barnaskólanum á Eskifirði með verkum Magnúsar Pálssonar og fleiri samtímalistamanna
- Myndlistarsýning eftir Friðgeir Jóhannes í Þórsmörk
- Sýning Sköpunarmiðstöðvarinnar, sem verður einnig hluti af Listahátíð í Reykjavík
- Sýning Dileydi Florez í Templaranum á Fáskrúðsfirði
Smiðjur og skapandi starf
Boðið verður upp á fjölbreyttar smiðjur fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Þar má nefna sumarsmiðjur, tónlistarsmiðjur og skapandi verkefni á borð við japanska flugdrekagerð og þátttöku í að mála vegglistaverk.
Samfélagsþátttaka í fyrirrúmi
Samfélagsþátttaka verður í lykilhlutverki á Innsævi og eru íbúar Fjarðabyggðar hvattir til að taka þátt í dagskránni og leggja sitt af mörkum með eigin viðburðum. Nú þegar hafa bæst við fjölbreyttir samfélagssprotnir viðburðir, svo sem tónleikar, ljóðakvöld og kórtónleikar víðs vegar um sveitarfélagið.
Frestur til að senda inn tillögur að viðburðum er til loka apríl.
Heildardagskrá og frekari upplýsingar um Innsævi verða kynntar í maí