Komið og hlustið á spennandi og dularfullar þjóðsögur í notalegri stemningu á bókasafninu! Sagnaþulan Berglind Ósk leiðir okkur inn í heim íslenskra þjóðsagna þar sem huldufólk, draugar og aðrar kynjaverur leynast á hverju horni. Tilvalin stund fyrir alla sem hafa gaman af góðum sögum, sérstaklega í skammdeginu þegar myrkrið færist yfir.
26. október, kl. 16:00 – Bókasafnið í Neskaupstað
27. október, kl. 16:00 – Bókasafnið á Stöðvarfirði
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!