Í tilefni Daga myrkurs mun listahópurinn Mercury Maze umbreyta kirkjum í þremur bæjum Fjarðabyggðar í lifandi listaverk með ljósum, hljóðum og gagnvirkri vörpunarlist.
Verkið sækir innblástur í þjóðsöguna um Völvuna á Hólmahálsi, sem samkvæmt sögunni verndaði fjörðinn og samfélagið. Með samspili ljóss, hljóðs og hreyfingar fær þessi gamla þjóðsaga nýtt líf og gestum gefst tækifæri til að taka virkan þátt í listaverkinu.
Mercury Maze samanstendur af listafólkinu Katerinu Blahutovu, Þorsteini Eyfjörð og Owen Hindley, sem sameina myndlist, tónlist og tækni í einstaka upplifun.
27. október kl. 20:00–22:00 – Reyðarfjarðarkirkja, Reyðarfirði
28. október kl. 20:00–22:00 – Fáskrúðsfjarðarkirkja, Fáskrúðsfirði
29. október kl. 20:00–22:00 – Norðfjarðarkirkja, Neskaupstað
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!