Misseraskipti er mynd- og hljóðinnsetning eftir Ellu Medicus og Ótal (Óskar Þór Arngrímsson), í samstarfi við Antoníu Berg.
Verkið byggir á myndefni og hljóðum úr náttúrunni í nágrenni Neskaupstaðar. Með því að flétta saman myndbrotum skapar Ella Medicus upplifun þar sem áhorfandinn ferðast á milli kunnuglegra landslaga og óhlutbundins sjónheims.
Hljóðheimurinn, sem Ótal hefur samið, inniheldur upptökur af Antoníu Berg syngja þjóðlagið *Sumarkveðju*, ásamt hljóðum úr umhverfinu og tónum úr hljóðgervlum. Mannröddin og náttúruhljóðin verða að hljóðfærum og hráefni í tónverkið.
Saman mynda hljóðin og myndirnar heildstæða og áhrifaríka upplifun sem kannar mörkin milli sumars og vetrar – breytilega birtu, dularfullt myrkur og taktfastan hjartslátt náttúrunnar þegar árstíðirnar skiptast á.
Öll hjartanlega velkomin!