Umhverfisráðstefna Austurlands verður haldin í annað sinn þann 5. júní. Þemað verður sjórinn og m.a. verða flutt erindi um orkuskipti í sjávarútvegi.
Orkuskipti, nýting auðlinda og framtíð sjávarútvegs verða í brennidepli. Fyrirlesarar úr atvinnulífi, rannsóknum og sjávarútvegi koma austur og ræða stöðu mála og framtíðarsýn.
Boðið verður upp á súpu á Hótel Hildibrand kl. 11:30 en dagskrá hefst í Tónspil kl. 12:15.
Meðal fyrirlesara verða:
- ÞORSTEINN MÁSSON, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
- KATRÍN HULDA GUNNARSDÓTTIR, MATÍS
- GUÐMUNDUR J. ÓSKARSSON, Hafrannsóknastofnun
Að erindum loknum verður opið spjall og tengslamyndun.
Takið daginn frá!