Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vetrarhlaupasyrpa Þristar 2021-2022

30. október - 26. mars

Vetrarhlaupasyrpa UMF Þristar hefur göngu sína laugardaginn 30. október!

Vetrarhlaupasyrpa Þristar saman stendur af sex 10 km hlaupum sem hlaupin eru á Egilsstöðum, síðasta laugardag í mánuði frá október og fram í mars. Eina undantekningin er desemberhlaupið sem fer fram á gamlársdag. Keppendur safna stigum eftir árangri og stigahæstu einstaklingar eru verðlaunaðir í lok vetrar.

- Upphaf: Við Íþróttahúsið á Egilsstöðum kl. 11:00, nema gamlaárshlaupið sem verður ræst kl. 10:00.
- Skráning: Hægt er að skrá sig fyrir fram hér.
Einnig verður tekið við skráningum á staðnum.
- Lengd: 10 km.
- Þátttökugjald: 1000 kr.
- Innifalið: Létt hressing og frítt í sund eftir hlaup.

Að loknu hverju hlaupi verður dregið um vegleg útdráttarverðlaun.

Hlökkum til að hlaupa með ykkur inn í veturinn!

 

Fleiri viðburðir