Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vinir Steinars - Styrktartónleikar

18. apríl kl. 20:00-22:00
Vinir Steinars
- Styrktartónleikar fyrir Steinar Atla og fjölskyldu
Eins og margir ef til vill vita þá hafa þau hjónin Aðalheiður Björt og Steinar Atli tekist á við stór og erfið verkefni síðustu árin. Aðalheiður hefur nú þegar sigrast á krabbameini en fljótlega eftir hennar veikindi tók Steinar Atli við. Steinar hefur verið í rannsóknum síðustu tvö ár en enn hefur ekki tekist að greina sjúkdóminn en ljóst er að hann veldur niðurbroti tauga, í dag dvelur hann á Dyngju
Þau hjónin eiga saman drengina Hafstein Fannar 7 ára og Rúrik Snæ 5 ára. Þessir kraftmiklu og duglegu strákar hafa staðið sig ótrúlega vel í flóknum og erfiðum aðstæðum.
Við vitum flest öll að þegar krefjandi veikindi og óvissa standa yfir í svona langan tíma reynist það gríðarlega erfitt fyrir alla. Fyrir utan hvað þetta getur tekið mikinn toll fjárhagslega.
Til að létta undir með fjölskyldunni höfum við Ladies Circle á Egilsstöðum ákveðið að skipuleggja styrktartónleika sem er vel viðeigandi þar sem fjölskyldan á mikið af tónlistarfólki í kringum sig. Vinir Steinars ætla að hóa sig saman og munu mæta á svið ásamt mörgum öðrum flottum austfirskum tónlistarmönnum. - Meira um það síðar 😉
Tónleikarnir verða haldnir laugardaginn 18. apríl nk. í Valaskjálf svo takið daginn frá!
Hvetjum alla til þess að mæta og eiga með okkur góða kvöldstund.
Allur ágóði af viðburðinum rennur beint til Aðalheiðar og Steinars Atla.
Miðaverð: 5000 krónur.
Miðasala hefst kl. 15:00 í Valaskjálf sama dag og verður opin fram að tónleikum.
Hús opnar kl. 19:00.
Tónleikar hefjast kl: 20:00
Þeir sem sjá sig ekki fært um að mæta en vilja styrkja fjölskylduna geta lagt inn á styrktarreikning:
Kennitala: 491123-1920
Banki: 0357-22-008524

GPS punktar

N65° 15' 45.416" W14° 23' 37.394"