Verið velkomin á lokaviðburð sýningarinnar VÖLVUMYRKVI: she who sees past corners í Þórsmörk í Neskaupstað.
Í tilefni sýningarloka býður Helga Dorothea Fannon, ásamt Myrru Leifsdóttur, upp á sérstakan viðburð þar sem texti, hljóð og ljós fléttast saman í myrkri sýningarrýmisins. Innblástur er meðal annars sóttur í Ginnungagap, hið mikla tómarúm í norrænni sköpunargoðafræði, og hugmyndir um hið óþekkta, myrkrið og það sem liggur handan hins sýnilega og þekkta.
Með þessum lokaviðburði fær sýningin nýja vídd þar sem mörk hins þekkta og óþekkta eru könnuð í gegnum sameiginlega upplifun.
29. október kl. 19:00
Þórsmörk (Þiljuvellir 11), Neskaupstað
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!