Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

DAGAR MYRKURS

26. október – 1. nóvember

Dagar myrkurs er sameiginleg byggðahátíð Austurlands sem haldin er ár hvert síðustu vikuna í október. Þar fögnum við skammdeginu, samverunni og öllu því sem lýsir upp myrkrið.

Markmið hátíðarinnar er að draga fram tækifærin sem felast í myrkrinu og skapa vettvang fyrir ímyndunarafl, samveru og fjölbreyttar upplifanir. Með Dögum myrkurs skapast tækifæri til að lyfta Austurlandi upp, virkja sköpunarkraftinn og hvetja íbúa og gesti til að taka þátt, upplifa og njóta saman.

Í myrkrinu kvikna hugmyndir, samvera og ný tækifæri.

Vertu með

Fyrirtæki, íbúar og aðrir þátttakendur eru hvattir til að vera með og finna sínar eigin leiðir til að fagna myrkrinu og sjá tækifærin sem í því felast.

Búðu til viðburði, hvettu aðra til þátttöku og taktu þátt í viðburðum sem haldnir eru víðsvegar um Austurland.

Hvernig viðburðir?

Möguleikarnir eru fjölbreyttir, allt frá vellíðan og slökun, norðurljósum og upplifunum undir stjörnubjörtum himni yfir í ferðir í myrkri, sérstaka viðburði, matarupplifun, þjónustu, uppákomur og aðrar skapandi hugmyndir.

Hugmyndirnar eru endalausar og markmiðið er að skapa saman áhugaverðar upplifanir og gera myrkrið að styrkleika áfangastaðarins.

Bættu við þínum viðburði

Skráðu viðburðinn þinn í viðburðadagatalið okkar hér → Veldu Dagar Myrkurs við skráningu. Þannig birtast allir viðburðir hátíðarinnar saman á einum stað hér fyrir neðan.

Notaðu markaðsefni Daga myrkurs við kynningu á viðburðinum. Markaðsefnið má nálgast hér →

Viðburðir Dagar Myrkurs