Fljótsdalshringurinn er ein fjölfarnasta ferðaleiðin á Austurlandi enda er hún sennilega sú vinsælasta á meðal heimamanna. Þú finnur tengingar við söguna við hvert fótmál, sjálfbærni og matur úr héraði er í hávegum höfð auk fjölda gönguleiða. Þar er einnig að finna einn hæsta foss Íslands, Hengifoss. Nánari upplýsingar um Fljótsdalinn má finna hér.
Áfangastaðir
Egilsstaðir
Egilsstaðir er stærsti bærinn á Austurlandi enda er hann miðstöð fjórðungsins. Þar má finna alla þá þjónustu sem ferðalangur þarf á að halda. Hinu megin við fljótið er systurbærinn Fellabær. Samanlagð…
Vallanes
Vallanes er kirkjustaður frá fornu fari og margir þjóðþekktir einstaklingar hafa gengið þar um götu. Þar er stunduð lífræn ræktun undir vörumerkinu "Móðir Jörð". Grænmeti og korn er ræktað og úr því …
Selskógur
Selskógur er útivistarsvæði austan Egilsstaða handan við Eyvindará. Um skóginn liggja stígar í fallegu umhverfi. Hann er kjörinn til útivistar allt árið og hentar vel hvort sem þú ert á leið í göngutú…
Hallormsstaðaskógur
Hallormsstaðaskógur var friðaður árið 1905 og varð þar með fyrsti þjóðskógur Íslands. Nú þekur birkiskógur um 350 ha lands innan sömu girðingar auk þess sem aðrar trjátegundir hafa verið gróðursettar …
Hallormsstaður
Hallormsstaður er lítill þéttbýliskjarni í miðjum Hallormsstaðaskógi, elsta þjóðskógi landsins. Skógurinn er vinsælt útivistarsvæði með tjaldsvæðum, göngu- og hjólaleiðum ásamt trjásafni og folfvelli.…
Bjargselsbotnar
Gengið er af stað frá skilti rétt við Hallormsstaðaskóla (gamla Hússtjórnarskólann). Leiðin er merkt með ljósgrænum stikum.Gengið er um framhlaupsurð, sem myndaðist fyrir um 10.000 árum og nefnist Hól…
Lagarfljótsormurinn
Lagarfljótið er eitt af mestu vatnsföllum Íslands. Vatnasvið þess nær frá Vatnajökli til Héraðsflóa. Þar sem það rennur um Fljótsdalshérað er það bæði fljót og stöðuvötn í senn. Stærsta stöðuvatnið næ…
Atlavík
Atlavík í Hallormsstaðaskógi var á árum áður vinsæll samkomustaður Austfirðinga og annarra, sérstaklega á meðan hinar frægu Atlavíkurhátíðir voru haldnar. Í Atlavík er rómantískt, friðsælt og skjólgot…
Trjásafnið í Hallormsstaðaskógi
Í Hallormsstaðaskógi er trjásafn með um 80 tegundum trjáa og runna víðsvegar að úr heiminum. Trjásafnið er einstakt á landsvísu. Hefjið gönguna um trjásafnið frá bílastæðinu við þjóðveginn, þar sem ei…
Hengifoss
Hengifoss í Fljótsdal er einn af þekktari áfangastöðum Austurlands og einn hæsti foss landsins. Fossinn er um 128 metra hár og afar tignarlegur. Góð gönguleið er að fossinum og þjónustumiðstöð við bíl…
Fljótsdalur og nágrenni Hengifoss
Fljótsdalur og ofanvert Fljótsdalshérað umhverfis Lagarfljót er þekkt fyrir veðursæld og skóga. Þar er Hengifoss, einn hæsti foss landsins, og önnur náttúrudjásn eins og Hallormsstaðaskógur ásamt þekk…
Snæfellsstofa, Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs
Snæfellsstofa er gestastofa og upplýsingamiðstöð fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Snæfellsstofa opnaði sumarið 2010 og er hún fyrsta vistvænt vottaða bygging landsins samkvæmt breska umhverfiss…
Valþjófsstaður
Valþjófsstaður er jörð innarlega í Fljótsdal. Hún er fornt höfuðból og þar hefur verið kirkja allt frá þrettándu öld. Valþjófsstaður var eitt af höfuðbólum Svínfellinga, en nokkrir meðlimir þeirrar fj…
Strútsfoss
Gengið er frá skilti rétt hjá Sturluflöt, innsta bæ í Suðurdalur, austan Kelduá. Þaðan er gengið upp með Fellsá austanverðri í Villingadalur.
Fossinn sést ekki fyrr en komið er nokkuð langt inn í dali…
Afþreying
Hús Handanna
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Vök Baths
Sláturhúsið
Selskógur
East Highlanders
Atlavík
Hengifoss
Snæfellsstofa, Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs
East Highlanders
Veitingastaðir
Askur Pizzeria
Askur Pizzeria er veitingastaður samtengdur handverksbarnum Aski Taproom. Við bjóðum upp á eldbakaða, þunnbotna pizzu, ásamt salötum og eftirréttum. Hægt er að velja af matseðli eða setja saman eigin pizzu úr úrvali áleggja sem í boði eru.
Glóð er glæsilegur veitingastaður staðsettur á Hótel Valaskjálf. Á matseðlinum má finna fjölbreytt úrval rétta fyrir alla fjölskylduna – pasta, fisk, kjöt og auðvitað ekta ítalskar pizzur.
Pizzurnar eru bakaðar í ekta ítölskum pizzaofni og gerðar eftir hefðbundinni ítalskri aðferð, með úrvali af góðu hráefni.
Hvort sem þú ert að leita að góðri pizz…
Salt Café & Bistro er veitingastaður og kaffihús í miðbæ Egilsstaða.
Við bjóðum fjölbreyttan matseðil og mikil gæði. Matseðillinn inniheldur meðal annars hamborgara, pizzur, salöt, tandoori, fiskrétti og steikur. Við leggjum einnig áherslu á heilsusamlega rétti fyrir fólk með hollan lífsstíl.
Skoðaðu matseðilinn okkar og fylgstu með krítartöflun…
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstaðir er rómað, fjölskyldurekið hótel sem hvílir á gömlum merg íslenskrar bændamenningar. Hótelið mætir ströngustu nútímakröfum um gæði, glæsileik og aðbúnað, um leið og það varðveitir uppruna sinn sem nær aftur til ársins 1903 og ljær því einstakan blæ. Gestir geta valið um vel búin og rómantísk antík-herbergi í eldri…
Hótel 1001 nótt er fjölskyldurekið lúxushótel, staðsett í náttúrulegu umhverfi á bökkum Lagarfljóts, 5 km frá Egilsstöðum.
Hótelið er búið fjölbreyttri og góðri aðstöðu til hvíldar og afþreyingar. Gestir okkar geta nýtt sér fallegt útsýni, heita potta undir berum himni, koníakstofu, bar og veitingastað.
Við leggjum áherslu á jákvæða upplifun af gis…
Veitingastaður Vök Baths, Vök Bistro er tilvalinn að auka enn frekar á upplifun dagsins. Á Vök Bistro er boðið upp á úrval bragðgóðra rétta ásamt léttari veitingum s.s. súpur, smárétti, þeytinga og fersk salöt. Margt hráefni kemur úr heimabyggð og er leitast við að kaupa inn lífrænt eins og kostur er. Gott samstarf er við austfirska bændur til að t…