Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Connected by food

28. mars kl. 14:00-16:00

Matur hefur þann einstaka eiginleika að tengja fólk saman, óháð tungumálum og landamærum.

Þriðja árið í röð er viðburðurinn Connected by Food haldinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Um er að ræða viðburð sem helgaður er því að fagna ríkulegri matararfleifð fólksins sem býr á Austurlandi.

Íbúum er boðið að taka þátt með því að útbúa hefðbundinn rétt frá sínu heimalandi og deila honum með samfélaginu.

Viðburðurinn er tækifæri til að kynnast fjölbreyttri matarmenningu íbúa Austurlands, segja sögurnar á bak við réttina, kynnast nýju fólki og eiga skemmtilega stund saman.

Meistarinn, Charles Ross, og teymi hans munu bjóða upp á sérstakan tónlistar „matseðil“.

Styrktaraðilar: Uppbyggingarsjóður Austurlands, Múlaþing, Sláturhúsið Menningarmiðstöð, A4, Sauðagull, Geitagott, Móðir Jörð, Blábjörg, Tehúsið, Fjóshornið, Fjallagrös Bakery, Fiskiverkun Kalla Sveins and Héraðsprent.


Tengjumst í gegnum mat!

Staðsetning

Sláturhúsið, Kaupvangi 9 Egilsstöðum