Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Tónlistarstund IV - 2025

3. júlí kl. 20:00-21:00
IS/EN
Sórún Bragadóttir sópransöngkona og Jón Sigurðsson píanóleikari flytja sönglög og aríur frá ýmsum tímabilum.
Sólrún lærði ung á píanó, söng í kórum og hóf mjög ung einsöngsnám á heimaslóðum. En fór síðan til frekara náms og lauk bachelor og meistaragráðum í einsöng og kennslufræðum frá tónlistarháskólanum í Bloomington í Indiana. Meðal kennara hennar þar var hin þekkta rúmenska söngkona Virginia Zeani. Sólrún fór beint úr námi til Þýskalands og starfaði við helstu óperu- og leikhús þarlendis og víða í Evrópu. Fyrsta fastráðning hennar var í leikhúsinu Kaiserlautern. Leiðin lá stuttu síðar til Hannover með föstum gestasamningi við Düsseldorf og að auki gerði hún fjölmarga gestasamninga við ma. Staatsoper í München, Mannheim, Karlsruhe, Heidelberg, Kassel, Bremen, Liége, Belfast, Avignon, Bern ofl.
Meðal margra hlutverka hennar má nefna Mimi í La Bohème, Suor Angelica í samnefndri óperu, Líu í Turandot, Desdemona í Otello, Gilda í Rigoletto, Elisabetta í Don Carlo, Greifafrúnin í Brúðkaupi Fígarós, Donna Anna í Don Giovanni, Pamínu í Töfraflautunni, Elettra í Idomeneo og Fiordiligi í Così fan tutte, Margarita í Faust, Leonora í Fidelio, Michaela í Carmen, Antonia í Ævintýrum Hoffmanns ofl.
Þá hefur hún einnig margoft komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum, sungið fjöldanallan af ljóðatónleikum, óratoríur og Vínartónlist, hérlendis sem víða erlendis. Haustið 2022 flutti Sólrún heim til Íslands eftir langa dvöl erlendis og kemur fram sem klassískur söngvari með fjölbreyttum efniviði. Hún hefur þróað sitt eigið ferli sem hún kallar. Óperusöngflæði þar sem hún kemur fram við hin ýmsu tækifæri og syngur a cappella í innsæisflæði.
Hún hefur einnig þróað sína eigin heildrænu raddkennsluaðferð sem byggist á psycho synthesis. þerapíu og eigin reynslu og næmni. Kennslan er ekki aðeins hugsuð fyrir söngvara heldur alla sem óska eftir að kynnast röddinni sinni betur og nýta sér til heilunar, hreinsunar og gleði. Að. auki hefur hún þróað Sound - frequency meðferð sem gefur fólki tækifæri á að hreinsa munstur og trauma, kjarna sig betur og upplifa heilun.
Jón Sigurðsson stundaði píanónám hér heima en hélt svo til framhaldsnáms, fyrst til Þýskalands og svo til Bandaríkjanna þar sem hann lauk meistaragráðu í píanóleik. Á undanförnum árum hefur hann leikið víða á Íslandi en einnig í Evrópu og Bandaríkjunum. Jón hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum og tónleikaröðum innanlands svo sem í Sigurjónssafni, Á ljúfum nótum, 15:15, Englar og menn, Hofi á Akureyri, Salnum, Sumartónleikum í Stykkishólmi og Tónlistarstund í Egilsstaðakirkju.
Hann hefur leikið einleik í píanókonsertum eftir Beethoven og Mozart og komið fram með fjölmörgum hljóðfæraleikurum og söngvurum. Út hafa komið fjórir geisladiskar með leik hans. Á þremur þeirra er að finna einleiksverk eftir Scriabin, Moszkowski,
Barber, Bernofsky, Strauss, Rossi, Schumann og Mozart en á einum þeirra eru eingöngu sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns. Jón kennir við Nýja tónlistarskólann í Reykjavík.
Tónleikaröðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi og Tónlistarsjóði.
Aðgangur er ókeypis
- - -
 
Renowned soprano Sólrún Bragadóttir and acclaimed pianist Jón Sigurðsson give a recital of art songs and opera arias.
Sólrún studied the piano as a child, sang in choirs and started taking voice lessons at a very young age. She furthered her studies and completed bachelor's and master's degrees in solo singing and pedagogy at Indiana University School of Music in Bloomington, Indiana. Among her teachers there was the well-known Romanian singer Virginia Zeani.
Sólrún went straight from her studies to Germany to work at the country's many opera houses. and theaters and in many parts of Europe as well. Her first engagement was at the theater in Kaiserlautern. Her next engagement was at the Opera House in Hannover with a permanent guest contract with Düsseldorf and in addition she made numerous guest contracts with i.a. Staatsoper in Munich, Mannheim, Karlsruhe, Heidelberg, Kassel, Bremen, Liège, Belfast, Avignon, Bern etc.
Her many roles include Mimi in La Bohème, Suor Angelica in the opera of the same name, Lia in Turandot, Desdemona in Otello, Gilda in Rigoletto, Elisabetta in Don Carlo, the Countess in The Marriage of Figaro, Donna Anna in Don Giovanni, Pamina in The Magic Flute, Elettra in. Idomeneo and Fiordiligi in Così fan tutte, Margarita in Faust, Leonora in Fidelio, Michaela in Carmen, Antonia in Adventures of Hoffmann et al.
She has also performed many times as a soloist with orchestras, singing many Lieder Abende. as well, oratorios and Viennese music, in Iceland and abroad. In the fall of 2022, Sólrún moved back home to Iceland after a long stay abroad and is active performing as a classical singer on different occasions and venues. She has developed her own project which she calls “An operatic flow” or Soulflowsinging, in which she performs on various occasions and scenarios, singing a cappella in an intuitive flow. She has also developed her own holistic voice teaching method based on psycho synthesis therapy and her own experience and intuition. The lessons are not only designed for singers but for everyone who wishes to get to know their voice better and use it for healing, cleansing and joy. In addition, she has developed a Sound - frequency treatment that gives people the opportunity to clear blockages and trauma, to align with their inner self and activate healing.
Jón Sigurðsson studied piano playing in Iceland, Germany and then in the US where he finished his M.M in piano playing. In resent years, he has appeared in many concerts both in Iceland and abroad. Jón has performed in several music festivals and music series across Iceland i.e. Sigurjónssafn, Á ljúfum nótum, 15:15, Angles and Men, Hof in Akureyri, Salurinn, Summer Conserts in Stykkishólmur, and Music for an Hour in Egilsstaðakirkja. He has appeared as a soloist in piano concertos by Beethoven and Mozart and performed with many instrumentalists and singers. Four CDs have been
issued with his playing. On three of them are solo works by Scriabin, Moszkowski, Barber, Bernofsky, Strauss, Rossi, Schumann, and Mozart. On one CD are only songs by Sigvaldi
Kaldalóns.
Admission is free

GPS punktar

N65° 15' 56.582" W14° 24' 0.725"