Bókasafn Héraðsbúa stendur fyrir kvöldlestri fyrir börn í barnalauginni á Egilsstöðum.
Lesari er Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings.
Gert er ráð fyrir að lesturinn hefjist um 19 og verði lokið um 19:30 og því er tilvalið að koma í sund, hlusta á lestur og fara svo heim á náttfötunum.
Ath. að rennibrautin verður lokuð á meðan upplestri stendur.
Lesturinn er samstarfsverkefni Bókasafns Héraðsbúa og Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum og er hluti af Bras - menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi