Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Evrópskur herragarður í íslenskri sveit – málþing um Gunnarshús á Skriðuklaustri

29. september kl. 14:00-16:00

Upplýsingar um verð

Frítt

Sunnudaginn 28. september kl. 14 verður haldið málþing á Skriðuklaustri í tilefni Menningarminjadaga Evrópu og 50 ára frá Evrópska húsverndarárinu 1975.

Á málþinginu verður fjallað um Gunnarhús sem var byggt árið 1939 og friðlýst að ytra byrði árið 2008.

 

Dagskrá:

  • Pétur Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri húsverndar hjá Minjastofnun, fjallar um húsið, arkitekt þess og byggingarsögulegt gildi.
  • Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, segir frá aðdraganda, byggingarframkvæmdum og seinni tíma sögusögnum.
  • Ólöf Sæunn Valgarðsdóttir, staðarhaldari á Skriðuklaustri, sýnir myndir af húsinu frá ýmsum tímum og byggingu þess.

 

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir en einnig verður streymt frá málþinginu á Youtube-rás Skriðuklausturs. Viðburðurinn fer fram á íslensku

 

Meðfylgjandi ljósmynd er tekin af Einari Ástráðssyni sumarið 1940 og er frá Ljósmyndasafni Norðfjarðar.

GPS punktar

N65° 2' 27.342" W14° 57' 9.731"

Staðsetning

Skriðuklaustur, Gunnarshús, Fljótsdalshreppur, Eastern Region, 701, Iceland