Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

VÍKURVAKI -Hipsumhaps & Ína Berglind

3. apríl kl. 20:00-23:00

Upplýsingar um verð

5900
Hipsumhaps stíga á svið í Frystihúsinu á Breiðdalsvík föstudaginn langa, 3. apríl, og lofa kraftmiklu og skemmtilegu kvöldi. Með sínum einstaka hljómi og grípandi lögum hafa þau skapað sér sterka stöðu á íslensku tónlistarsenunni. Tónlistarkonan Ína Berglind hitar upp og setur tóninn fyrir kvöldið.
Miðsala er á heimasíðu Frystihússins.
Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikar hefjast kl. 21:00.
Tónleikarnir marka upphaf nýrrar tónleikaraðar, Víkurvaki, sem mun á árinu 2026 færa fjölbreytt tónlistarfólk og hljómsveitir úr ólíkum áttum í Frystihúsið. Markmiðið er að efla staðinn enn frekar sem lifandi og spennandi tónleikavettvang á Austurlandi og á landsvísu.
Víkurvaki er nýtt áhersluverkefni í tónlistaruppbyggingu á vegum Menningarstofu Fjarðabyggðar, sem Frystihúsið á Breiðdalsvík leiðir. Verkefnið byggir á góðum grunni fyrri verkefna, þar á meðal tónleikaraðarinnar Strengir sem fór fram árið 2025 í samstarfi við BRJÁN og SÚN

GPS punktar

N64° 47' 30.347" W14° 0' 28.170"