Áttu jólaskraut sem þú ert hætt/ur að nota? Langar þig í nýtt?
Í tilefni af evrópsku nýtnivikunni (22. nóv - 30. nóv) munu söfnin þrjú í Safnahúsinu á Egilsstöðum standa fyrir jólaskrautsskiptimarkaði frá 17.-28. nóvember í anddyri Safnahússins! Markmið nýtnivikunnar er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga úr myndun úrgangs (nánar á samangegnsoun.is)
Hvernig virkar jólaskrautsskiptimarkaðurinn?
- Komdu með hvaða jólaskraut sem er (í góðu standi auðvitað) sem þú ert hætt/ur að nota.
- Veldu þér annað skraut sem þig langar í og taktu með heim!
- Komdu með hvaða jólaskraut sem er (í góðu standi auðvitað) sem þú ert hætt/ur að nota.
- Veldu þér annað skraut sem þig langar í og taktu með heim!
Styðjum hringrásarhagkerfið - lengjum líftíma hluta og minnkum sóun!