Við kynnum með stolti nýja starfsmenn Tilraunaeldhús Hallormsstaðaskóla - Kára Þorsteinsson og Báru Dögg Þórhallsdóttur.
Kári Þorsteinsson ólst upp á Hólmavík en flutti til Reykjavíkur til að stunda nám og er útskrifaður matreiðslumeistari. Kári hefur unnið í veitingageiranum hérlendis og erlendis í að verða 20 ár. Hefur starfað í Reykjavík meðal annars á Dill, Grillinu og Kol, Texture í London og Noma í Kaupmannahöfn. Nú rekur hann Nielsen restaurant á Egilsstöðum. Kári býr á Egilsstöðum ásamt Sólveigu Eddu Bjarnadóttur og sonum þeirra tveim.
Kári leggur áherslu á íslenskt hráefni og að nýta gamlar íslenskar matarhefðir í sinni vinnu. Hann hefur áhuga að sækja sitt hráefni sjálfur og tínir villtar jurtir, sveppi, ber ásamt því að fara á veiðar. Kári leggur einnig mikla áherslu á fullnýtingu afurða og ýmsar vinnslu- og geymsluaðferðir til að lengja líftíma hráefna eins og að reykja, þurrka, súrsa, salta og grafa. Hann er skapandi og óhræddur að fara ótroðnar slóðir er kemur að nýtingu og upplifun á matarkistu Austurlands.

Bára Dögg Þórhallsdóttir er uppalin á Egilsstöðum og býr þar í dag ásamt Boga Kárasyni og tveim dætrum, Björk fimm ára og Björmu tveggja ára. Bára lauk BSc í Iðnaðartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2016 eftir að hafa áður lokið námi í tækniteiknun frá Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Hún hefur síðust ár starfað við bókhald ásamt því að taka að sér verkefnastjórnun. Bára er annar eigandi vefverslunarinnar VERA store. Hönnun og heimili eru helstu áhugamál hennar ásamt því að elda og borða góðan mat og njóta samveru með fjölskyldu og vinum.

Tilraunaeldhús Hallormsstaðaskóla er styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands og Lóu - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina.