“Sumar kvartettinn” er samstarf einvala tónlistarfólks úr íslensku tónlistarlífi, sem leiðir saman krafta sína, þvert yfir landið, í lítilli röð tónleika sumarið 2026. Kvartettinn skipa söngkonan Björt Sigfinnsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Sigmar Þór Matthíason á kontrabassa og trommuleikarinn Birgir Baldursson.
Á tónleikunum verða spilaðar eigin útsetningar af uppáhalds jazz og blús lögum bandsins í bland við frumsamið efni, íslenska sálma/þjóðlög og einstaka “off genre” perlur úr ýmsum áttum.
Húsið opnar kl. 20:00.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.