Aukum samtalið og styrkjum samstarfið!
Menning og ferðaþjónusta á Austurlandi – opin vinnustofa á Egilsstöðum, sem haldinn verður föstudaginn 8. maí kl. 10.00 - 15.00 í Sláturhúsinu, menningarmiðstöðinni á Egilsstöðum.
Markmiðið er að viðburðurinn verði bæði skemmtilegur og gagnlegur en lagt er upp með að styðja og styrkja samstarf og samtal milli safna og ferðaþjónustuaðila á Austurlandi og stuðla að sjálfbærri þróun í ferðaþjónustu. Því viljum við leiða saman aðila úr safna- og menningargeiranum og ferðaþjónustunni á einn stað og hefja samtalið. Því aukin samvinna er ekki síst mikilvæg í ljósi þess að heimsóknir á söfn eru þriðja vinsælasta afþreying ferðamanna á Íslandi, á eftir náttúrulaugum og heilsulindum.
Nánari dagskrá verður kynnt síðar en fyrirkomulagið verður með þessum hætti:
Fyrir hádegi verða tvær pallborðsumræður, í fyrri umræðu verða ræddir möguleikar í samstarfi innan Austurlands og í síðari hugleiða viðmælendur áskoranir og úrræði í tengslum við ferðaþjónustu á Austurlandi. Þátttakendur fá tækifæri til að spyrja spurninga og koma með athugasemdir.
Eftir hádegi verða tvær vinnustofur, þar sem önnur þeirra verður samstarfs vinnustofa þar sem markmiðið er að að þátttakendur fái tækifæri til að spjalla saman, kynnast hvert öðru betur, koma með hugmyndir að lausnum vegna sameiginlegra áskorana og mögulega koma á fót skemmtilegu samstarfi.
Viðburðurinn er ókeypis, en óskað er eftir að fólk skrái sig, hér: https://forms.gle/8Wp4bPDFrtp6Lkmm8
Rannsóknasetrið í safnafræði, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS), Samtök Ferðaþjónustunnar (SAF) og Síldarminjasafnið á Siglufirði standa fyrir viðburðinum