Upplýsingar um verð
Skáldaþing er ný hátíð hér fyrir austan sem leggur áherslu á skáldskap í óhefðbundnum rýmum, skemmtilegum viðburðum og í nýrri nálgun á hið ritaða orð.
Hún er haldin 20.maí - 31.maí 2026 hér fyrir austan og bæði þekkt skáld sem og minna þekkt taka þátt í henni, en þátttakendur eru um 50 manns, sem verða með skáldskap sinn til sýnis hér og þar.
Það sem veður meðal annars í boði er:
*Ljóðaupplestur í sundlaugum, Seyðisfjörður og Egilsstaðir
*Ljóð í leiðinni - allskonar ljóð hér og þar í umhverfinu
*Opnun á listasýningu í Sláturhúsinu
*Opnun á listasýningu nemenda Grunnskóla Seyðisfjarðar, Vesturvegg-Skaftfell Bistró
*Viðburður í Tvísöng
*Ljóðaganga í Hallormsstað
*Úti-myndlistarsýning á Seyðisfirði
*Ljóð í náttúrunni á Vestdalseyri
*Ljóð í lúgunni - heimsending af ljóði beint til þín.