Hernámsdagurinn er árleg bæjarhátíð Reyðfirðinga og er haldinn fyrsta laugardag í júlí til þess að minnst hernámi Breta á Reyðarfirði 1. júlí 1940. Á dagskrá hátíðarinnar eru söguganga um bæinn og viðburðir í Íslenska stríðsárasafninu, svo sem tónlistaratriði, kynningar á nýjustu rannsóknum á stríðsárunum og listasýningar.
Í tilefni dagsins býðst gestum gjaldfrjáls aðgangur að safninu.
Árið 2026 verður núverandi grunnsýning safnsins kvödd þar sem ný grunnsýning rís í nýju sýningarhúsnæði á vormánuðum 2027.