Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Þessi einstaka ferðaleið Um öræfi og dali er aðeins fær yfir sumartímann og aðeins fjórhjóladrifnum ökutækjum. Hún býður upp á brot af því besta sem Austurland hefur upp á að bjóða en hún liggur meðal annars með fram bökkum Lagarfljóts og um víðerni hálendis Austurlands. Á leiðinni má sjá og finna mögnuð náttúrufyrirbrigði, fagra fossa, heitar laugar og stórfengleg fjöll, sem og einstakt dýralíf sem er einkennandi fyrir landshlutann, að ógleymdu Stuðlagili, einum vinsælasta áfangastað landsins.

Ekið er sem leið liggur frá Egilsstöðum með fram bökkum Lagarfljóts í gegnum Hallormsstaðaskóg, stærsta skóg Íslands, í átt að Fljótsdal. Í Fljótsdal er margt að skoða, hægt er að ganga vinsæla leið upp með Hengifossi eða líta við í Snæfellsstofu, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem lífríki svæðisins eru gerð áhugaverð skil. Þá er tilvalið að koma við á Skriðuklaustri og kynna sér merkilega sögu hússins og húsbyggjandans, rithöfundarins Gunnars Gunnarssonar. Á Skriðuklaustri er hægt að skoða rústir munkaklausturs frá 16. öld og þar er frábært útileiksvæði fyrir börn á öllum aldri. Innst í dalnum er Óbyggðasetur Íslands þar sem meðal annars er hægt að fræðast um lífsbaráttu fólks við jaðar hálendisins fyrr á tímum.

Vegur nr. 910 (opnar um miðjan júní) liggur upp á hálendi Austurlands þar sem auk náttúrufegurðar má búast við að sjá hreindýr og heiðagæsir. Vegurinn er malbikaður alla leið að Kárahnjúkum en eftir það tekur við malarvegur (nr. 907) sem er aðeins fær vel búnum fjórhjóladrifnum bílum. Á leiðinni þangað er vel þess virði að taka á sig krók og koma við í Laugarfelli en þar eru fjöldi gönguleiða við allra hæfi og heitar laugar. Þaðan er einnig mögulegt að komast að Snæfelli sem er hæsta fjall landsins utan jökla. Aðrir markverðir staðir á ferðaleiðinni eru t.d. Hafrahvammagljúfur og Laugarvalladalur.

Ferðaleiðin liggur um eina af ferðamannaperlum Austurlands, Stuðlagil á Efri-Jökuldal, sem státar af einni stærstu og fallegustu stuðlabergsmyndun á landinu og er einstaklega myndrænt. Hægt er að skoða gilið frá tveimur sjónarhornum – frá útsýnispalli norðan megin við gilið við bæinn Grund – og austan megin með því að fylgja gönguleið frá bænum Klausturseli, fram hjá Stuðlafossi og ofan í gilið.

Frá Stuðlagili er ekið út dalinn á vegi nr. 923 (malarvegur en fær öllum bílum) og inn á þjóðveg nr. 1 áleiðis til Egilsstaða. Á leiðinni er tilvalið að stoppa við fossinn Rjúkanda á Jökuldal og enda ferðina jarðhitalaugunum Vök Baths við Urriðavatn.

Gott er að hafa í huga:

Til að komast þessa ferðaleið þarf að vera á vel búnum fjórhjóladrifnum bíl. Áður en lagt er af stað þarf að ganga úr skugga um að vegir séu opnir. Vegslóðar (F-vegir) eru aðeins opnir yfir sumartímann. Hægt er að skoða opnanir og færð á vegum hér.

Hægt er að komast stærsta hluta leiðarinnar á venjulegum bíl. Vegir frá Egilsstöðum að Kárahnjúkum eru malbikaðir og sömuleiðis vegurinn frá Egilsstöðum að Stuðlagili, utan nokkurra kílómetra kafla sem er malarvegur en vel fær öllum bílum.

Fjölbreyttir möguleikar í gistingu og veitingum eru í boði á ferðaleiðinni en þeir eru þó takmarkaðir á hálendinu. Mikilvægt er því að fara vel undirbúin um þessa mögnuðu ferðaleið!

Við mælum með að taka góðan tíma í ferðalagið til að njóta sem best þess sem fyrir augu ber á leiðinni. Hægt er að útbúa eigin útgáfu af ferðaleiðinni með því að nota „Mitt uppáhald“ möguleikann hér á síðunni. Þannig getur þú skipulagt draumaferðalagið þitt um Austurland á þann hátt sem þér hentar best. Góða skemmtun!

 

 

 

 

Áhugaverðir staðir

Afþreying

Hús Handanna
Sundlaugin Egilsstöðum
Sláturhúsið
East Highlanders
Trjásafnið í Hallormsstaðaskógi
Snæfellsstofa, Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs
Skriðuklaustur, menningarsetur og sögustaður
Óbyggðasetur Íslands
Fossahringur
Laugarfell
Torfhús við Hjarðarhaga
Vök Baths

Aðrir (1)

Sænautasel Jökuldalsheiði 701 Egilsstaðir 853-6491

Veitingastaðir

Aðrir (3)

Bókakaffi Hlöðum Hlaðir 700 Egilsstaðir 471-2255
N1 - Þjónustustöð Egilsstaðir Kaupvangur 4 700 Egilsstaðir 440-1450
Olís - Þjónustustöð Hafnarbraut 19 740 Neskaupstaður 477-1500

Gististaðir

Gistiheimilið Vínland
Skipalækur
Hótel Valaskjálf
Hérað | Berjaya Iceland Hotels
Hótel Edda Egilsstaðir
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstaðir
Tjaldsvæðið á Egilsstöðum
Tehúsið Hostel
Hotel 1001 nott
Stormur Cottages
Vallanes
Mjóanes accommodation
Hótel Hallormsstaður
Tjaldsvæðið Hallormsstaðaskógi
Óbyggðasetur Íslands
Laugarfell

Aðrir (2)

Lyngás Guesthouse - Egilsstaðir Lyngás 5-7 700 Egilsstaðir 4711310
Eyjólfsstaðir á Héraði Fljótsdalshérað 701 Egilsstaðir 7730603